Lítið jökulhlaup í Vestari-Jökulsá
Eins og greint var frá hér á vefnum í gær barst Veðurstofunni í gærmorgun tilkynning um óvenjulegan grágruggugan lit í Vestari-Jökulsá í Skagafirði og að væg brennisteinslykt væri af ánni. Mælir Veðurstofunnar við Goðdalabrú staðfestir aukið rennsli í ánni, þó það sé ekki mikið.
Við nánari skoðun vatnamælingamanna í morgun kom í ljós að leiðni við upptök árinnar við Sátujökul var yfir eðlilegum mörkum. Sterk brennisteinslykt er á svæðinu. Benda athuganir til að jarðhitavatn hafi blandast jökulvatni og að um lítið jökulhlaup sé að ræða. Lítil jökulhlaup á þessum slóðum eru þekkt. Upptök jarðhitavatnsins eru í Hofsjökli, en nánari staðsetning bíður frekari skoðunar.
Brennisteinsvetni berst með hlaupvatninu þegar það kemur undan jökli. Styrkur þess er þá svo mikill að það getur skaðað slímhúð í augum og öndunarvegi. Ferðafólki er því eindregið ráðlagt að halda sig fjarri upptökum árinnar á meðan hlaupið stendur yfir, samkvæmt upplýsingum frá jarðvísindasviði Veðurstofunnar.