Ljós í minningu Skarphéðins Andra

Nemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra söfnuðust saman við verknámshús skólans í morgun og tendruðu friðarljós í minningu Skarphéðins Andra Kristjánssonar, sem lést í fyrradag eftir erfiða baráttu í kjölfar umferðarslyss í Norðurárdal þann 12. janúar sl.

Skarphéðinn Andri var búsettur á Sauðárkróki og stundaði verknám við skólann. Unnusta hans var Anna Jóna Sigurbjörnsdóttir, en hún lést í slysinu. Áður hafði hennar verið minnst á sama hátt við skólann, en Anna Jóna var jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju sl. laugardag.

Minningarstundir um Skarphéðinn Andra voru haldnar í gær í Fjölbrautaskólanum og í Áskirkju í Reykjavík. Fram hefur komið í fjölmiðlum að hann kaus sjálfur að gefa líffæri sín og munu þau koma sex manneskjum til bjargar.

 

 

 

 

 

Fleiri fréttir