Ljósmyndakeppni á útilífsdegi barnanna
Það er alltaf að bætast við fjörið á útilífsdaginn og nú er búið að bæta við ljósmyndakeppni þar sem vegleg verðlaun verða í boði.
Ekki gleyma myndavélunum heima og verið dugleg að taka skemmtilegar útilífsmyndir með okkur þann 7. júlí.
Verðlaunin eru :
1. Verðlaun – gjafakort frá Ferðafélagi Íslands
2. Verðlaun – Helgargistin fyrir fjölskyldu í Langadal í Þórsmörk
3. Verðlaun – árbók FÍ 2012 um Skagafjörð vestan vatna.
Pálína hefur fengið nokkrar algengar spurningar í gegnum tölvupóstinn sinn:
Hentar útilífsdagurinn öllum börnin ?
Útilífsdagur barnanna hentar öllum börnum alveg frá 0 ára og upp úr.
Við leggjum áherslu á skemmtanagildi í náttúrunni og því auðvelt að finna afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
Eru ferðamenn velkomnir ?
Allir eru svo sannarlega velkomnir !
Heimamenn, ferðamenn, foreldrar, ömmur, afar, frænkur og frændur.
Við tökum vel á móti ykkur með bros á vör.
Er í lagi að skilja börnin eftir hjá ykkur?
Við tökum enga ábyrgð á neinum og hvetjum því alla fjölskylduna til þess að mæta.
Það verður mikið um að vera á Reykjum þann 7. júlí og því gefst okkur ekki tækifæri á því að gæta barnanna. Hlutverk okkar er að sýna og kenna aðferðir sem við höfum séð og öðlast reynslu í frá Norðurlöndunum.
Dagskráin er mjög skemmtileg fyrir þá fullorðnu einnig.
Hvað þarf að hafa með þennan dag:
• Hráefni til útieldunar (fólk hvatt til að koma við í búðinni og kaupa álpappír, appelsínu og súkkulaði fyrir fjölskylduna).
• Myndavél
• Plastbox
• Áttaviti
• Kíkir
• Vasahnífur til að tálga
• Fatnaður eftir veðri
• Stígvél
Dagur: sunnudagurinn 7. júlí
Tími: 13:00-16:00
Staðsetning: Reykir á Reykjaströnd í Skagafirði. Hittumst við Grettis Café.
Þátttökugjald: ókeypis
Nánari upplýsingar: Pálína Ósk Hraundal palinaosk@gmail.com og sviggosdottir@gmail.com , Sími: 868-8018.
Frekari upplýsingar um viðburðinn er að finna hér