Lögregla ánægð með Landsmót

-Það hefur allt gengið vel og slysalaust fyrir sig utan við það að nauðgun var tilkynnt í nótt, segir Stefán Vagn Stefánsson yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki sem staðið hefur vaktina á Melunum ásamt fjölda starfsbræðra og systra.

Þrátt fyrir mikinn fjölda gesta á skemmtun og dansleik í nótt fór allt mjög vel fram og fólk söng og naut veðurblíðunnar langt fram á morgun og er Stefán mjög ánægður með hvernig til hefur tekist hingað til. Lögreglan verður með eftirlit við hliðin út af svæðinu í dag og eru gestir sem eru á heimleið beðnir að leggja ekki í ´ann fyr en þeir eru komnir í ökuhæft ástand.

Fleiri fréttir