Lokað vegna parketlagnar
Búið er að loka íþróttahúsinu á Sauðárkróki vegna parketlagnar sem fer þar fram. Verið er að setja upp æfingatöflu með æfingum í Varmahlíð og í barnaskólanum og eru æfingar því hættar fram að 1. september.
Fram kemur á heimasíðu Tindastóls að gengið sé út frá því að 9. flokkur og yngri æfi í barnaskólasalnum á meðan þessari lokun stendur, en 10. flokkar og eldri, æfi í Varmahlíð.
Engar æfingar verða því fram að 1. september frá og með deginum í dag, fimmtudaginn 25. ágúst. Fólki er bent á að fylgjast nánar með fréttum á heimasíðu Tindastóls.
Vegna vinnu við upprif gólfsins, er óskað eftir sjálfboðaliðum seinni partinn á morgun föstudag 26. ágúst og fram á kvöld. Hægt er að hafa samband við Geira í síma 894-5832 vegna nánari upplýsinga.