Lokahóf körfuknattleiksdeildar
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
14.04.2014
kl. 16.20
Lokahóf körfuknattleiksdeildar Tindastóls verður haldið á Kaffi Krók á föstudaginn langa, 18. apríl nk. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði, þar verða skemmtiatriði og verðlaunaafhending.
Að sögn Stefáns Jónssonar formanns körfuknattleiksdeildarinnar verður boðið upp á fordrykk, girnilegt matarhlaðborði og óvæntan eftirrétt.
Húsið opnar kl. 20 og miðaverð er 3500 kr. Miðapantanir fara fram í gegnum netfangið karfa@tindastoll.is. Nánari upplýsingar í síma 868 2355.