Lumar þú á danslagaperlu?

Gamlar kempur í hljómsveit Dægurlagakeppninnar. Mynd fengin af Facbook Huldu Jónasar sem drífur verkefnið
Gamlar kempur í hljómsveit Dægurlagakeppninnar. Mynd fengin af Facbook Huldu Jónasar sem drífur verkefnið "Danslagakeppni kvenfélgasins á Króknum í 60 ár" áfram.

Í nokkurn tíma hefur hópur fólks unnið í verkefninu Danslagakeppnin á Króknum í 60 ár þar sem leitað er að gömlum danslagaperlum úr keppninni og undirbúnar fyrir tónlistarveislu sem haldin verður í Sæluviku Skagfirðinga að vori.

„Staðan er sú að við erum nú komin með talsverðan slatta af fallegum dægurlagaperlum sem við höfum fundið hér og þar með hjálp frá ótrúlega mörgu góðu fólki,“ segir Hulda  Jónasdóttir einn upphafsmanna verkefnisins. Hún segir marga hafa haft samband sem hafi haft ýmislegt gagnlegt í fórum sínum og þá hafi þeir Geirmundur Valtýsson, Hafsteinn Hannesson, Jónas Þór, Gunnar Páll og Stefán Pedersen,  sem allir spiluðu í keppninni á sínum tíma, hafa verið mjög hjálplegir. „Og svo hafa hinir og þessir Skagfirðingar haft samband og  nokkrar skagfirskar húsmæður sem áttu lög i keppnunum,“ segir Hulda og biður, ef einhver lumar á upptökum eða kann lög úr keppnunum eða á myndir, að setja sig í samband við hana. „Við erum á fullu þessa dagana að velja réttu lögin í prógrammið úr öllum þessum fallegu dægurlagaperlum sem okkur hafa borist og einnig að finna réttu söngfuglana í verkefnið.“

Hægt er að nálgast lag og ljóð Eyþórs Stefánssonar, Vornótt, sem tók þátt í dægurlagakeppninni á Króknum árið 1958 og lenti í öðru sæti HÉR.

Lagið er útsett af hljómsveitarstjóra verkefnisins Þórólfi Stefánssyni og sungið af þeim Ingibjörgu Fríðu og Hreindísi Ylvu.

Fleiri fréttir