Lúxusgistihús mun rísa í Fljótum
Orri Vigfússon sem þekktur er fyrir að gegna stöðu formanns verndarsjóðs villtra laxastofna, ásamt fleirum athafamönnum standa í viðamikilli uppbyggingu ferðamennsku í Fljótum í Skagafirði. Á bænum Deplum mun að öllum líkindum rísa lúxusgistihús í vetur sem rekið verður undir merkjum Eleven Experience, sem er í eigu Chad R. Pike, en fyrirtækið býður upp á lúxusgistingu í hæsta gæðaflokki víða um heim.
Pike er aðalframkvæmdastjóri og varaformaður fjárfestingarsjóðsins Blackstone í Evrópu, en Blackstone er einn stærsti fjárfestingarsjóður í heimi.Í Morgunblaðinu í dag er umfjöllun um málið en þar segir Orri að eftir eigi að ákveða endanlega hvernig aðkomu Pikes verði háttað og hversu mikla fjármuni hann leggi til.