Maður tróðst undir hrossum
Ungur maður varð undir hrossastóði í Víðidalstungurétt í gær. Samkvæmt Rúv.is tróðst maðurinn undir hrossunum þegar verið var að reka þau í dilk og var hann fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.
Ekki er vitað hvað hann er mikið slasaður.
