Magnús Pétursson á Vindheimum skráir sögu föður síns

Út er komin bókin Lífshlaup athafnamanns, ævisaga Péturs Péturssonar, fyrrverandi alþingismanns og athafnamanns frá Mýrdal, eftir son hans, Magnús Pétursson fyrrverandi ráðuneytisstjóra. Magnús tileinkar bókina Pétri Óla bróður sínum. Þeir ólust upp hjá afa sínum og ömmu á Vindheimum í Skagafirði eftir skilnað foreldra sinna í Reykjavík.

Bræðurnir Magnús og Pétur Óli en Pétur faðir þeirra tók myndina í heimsókn á Vindheimum.

Í bókinni fjallar Magnús meðal annars um uppvaxtarárin og birtar eru ljósmyndir úr Skagafirði sem ekki fyrr hafa sést opinberlega. Saga Péturs Péturssonar er áhugaverður og litríkur samtímaspegill. Hann sat á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn á öldinni sem leið og kom líka víða við sögu í athafnalífinu. Hann starfaði fyrst í Landssmiðjunni, tók þátt í viðræðum um viðskipti Íslendinga við stjórnvöld ríkja í Austur-Evrópu, var forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar, Álafoss og Norðurstjörnunnar, starfsmannastjóri við Sigölduvirkjun.

Magnús Pétursson, höfundur bókarinnar, við Rauðhálsa, málverk eftir Jóhannes S. Kjarval frá 1956.

Þá var Pétur mjög liðtækur við að endurskipuleggja atvinnurekstur sem gekk illa og gárungar fóru þá að kalla hann „afréttara fyrirtækja“! Enn má nefna að Pétur var einn útgefenda tímaritsins Stjörnur þar sem fjallað var um bíómyndir og kvikmyndaleikara. 

  • Bókin Lífshlaup athafnamanns er liðlega 400 blaðsíður að stærð, prýdd fjölda ljósmynda. Útgefandi er Svarfdælasýsl forlag sf. 
  • Magnús dvelur löngum stundum í Skagafirði. Hann á sumarhús að Vindheimum og saman eiga þeir bræður, Magnús og Pétur Óli, jörðina Lauftún. Pétur Óli býr og starfar í Pétursborg í Rússlandi.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir