Margrét og Rannveig stóðu sig í stykkinu

Ekki verður annað sagt en að allir leggist á eitt við að halda úti heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni.  Vinkonurnar Margrét Kristjánsdóttir og Rannveig Sigrún Stefándóttir, báðar 9 ára á Sauðárkróki, héldu hlutaveltu sl. fimmtudag og söfnuðu kr.22.952,- sem þær gáfu til Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki. 

Það voru Herdís Klausen, hjúkrunarforstjóri og Hafsteinn Sæmundsson, forstjóri, sem veittu gjöfinni viðtöku.  Margrét og Rannveig Sigrún þakka Kaupfélagi Skagfirðinga fyrir að veita þeim aðstöðu í anddyri Skagfirðingabúðar til að halda hlutaveltuna og að sjálfsögðu þeim sem tóku þátt.

Fleiri fréttir