Margt um að vera í íþróttahúsinu um helgina

Um helgina verður mikið um að vera í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Sirkus Baldoni verður þar með glæsilega sýningu á morgun, laugardaginn 30. ágúst kl. 16:00. Einnig verða Körfuboltabúðir Tindastóls 2014 í fullum gangi alla helgina sem og æfingar hjá meistaraflokki karla.

Á vef Tindastóls eru foreldrar, systkini og áhugafólk um körfubolta boðið velkomið í íþróttahúsið um helgina og fylgjast með öllum þeim æfingum sem verða í húsinu þessa daga, bæði hjá upprennandi körfuboltastjörnum og æfingum hjá meistaraflokki karla.

Á sunnudaginn, þegar Körfuboltabúðunum hefur verið slitið, ætlar meistaraflokkur karla að slá upp æfingaleik þar sem þeir skipta í tvö lið, leika með stigatöflu og dómurum. Allar frekari upplýsingar um dagskrá helgarinnar er að finna á vef Tindastóls.

Fleiri fréttir