Margvíslegt eignartjón í „dýrvitlausu“ veðri

Víða hefur orðið foktjón í Skagafirði síðasta sólarhringinn. Þessa mynd tók Róbert Daníel Jónsson af björgunarsveitarmanni í Björgunarfélaginu Blöndu eftir óveðrið í mars sl.
Víða hefur orðið foktjón í Skagafirði síðasta sólarhringinn. Þessa mynd tók Róbert Daníel Jónsson af björgunarsveitarmanni í Björgunarfélaginu Blöndu eftir óveðrið í mars sl.

Margvíslegt eignartjón hefur orðið í Skagafirði í storminum sem gekk yfir landið í gær og í nótt og þar er víða bálhvasst enn. Eins og fram kom á feykir.is í morgun liggur rafmagnslína yfir veginn á milli bæjanna Miðsitju og Sólheima í Blönduhlíð og eru því hátt í tíu bæir rafmagnslausir þar.

Jónína Guðrún Gunnarsdóttir í Syðra-Vallholti sagði í samtali við Feykir nú fyrir skemmstu að þar ætti eftir að fara út og skoða skemmdir betur. „Það er enn helvítis spænurok hér í holtinu. En það sem ég sé er að hlöðuhurðin að norðanverðu er fokin út í veður og vind. Kerrann sem „var“ nokkuð vegleg að stærð og gerð er fokin og er í henglum á girðingunni hér sunnan við húsið. Við könnum þetta betur þegar verður stætt úti,“ segir Jónína, sem eðli málsins samkvæmt varð að afboða sig í vinnu sem hún sækir á Sauðárkróki.

Evelyn Ýr Kuhne, ferðaþjónustubóndi á Lýtingsstöðum í Skagafirði segir að þar hafi lítið geymsluhús tekið smá loftkast en hangi enn í spottanum. „Bóndinn er að taka stöðuna en ég hef ekki ennþá fengið útkall. Annars er bálhvasst núna og við ennþá viðbúin öllu,“ sagði Evelyn. Engir ferðamenn voru á Lýtingsstöðum í nótt, en þar er rekin ferðaþjónusta allt árið.

Kolbrá Höskuldsdóttir, sem búsett er í Borgarfirði en heldur til í Sólheimagerði í Blönduhlíð um þessar mundir og stundar vinnu á Syðra-Skörðugili, segir að þar sé ekki rafmagnlaust, en ýmsir aðrir bæir í Blönduhlíð eru rafmagnslausir, enda liggur rafmagnslína yfir veginn og hann því ófær sem stendur. „ Það liggur rafmagnlína yfir veginum hér á milli bæja og því með öllu ófært og bannað að aka veginn. Mín eina leið í vinnuna er því að fara austur fyrir, þ.e. í gegnum Egilsstaði, Kirkjubæjarklaustur, Selfoss og svo áfram. Spurning hvort maður láti á reyna og verði í kjölfarið kosinn starfsmaður mánaðarins,“ sagði Kolbrá á gamansömu nótunum.

Haft var eftir Vernharð Guðnasyni, slökkviliðsstjóra og formanni almannavarnarnefndar í Skagafirði í frétt á ruv.is í morgun að veður hefði verið snælduvitlaust í Skagafirði í nótt og í morgun og björgunarsveitir hafi haft í nógu að snúast.  

Verst var veðrið í austanverðum Skagafirði eins og við var búist. Fyrstu tilkynningar um foktjón bárust í gærkvöldi. Björgunarsveit frá Sauðárkróki var senda á vettvang og varð frá að hverfa vegna veðurs. „Það var ekkert hægt að gera og ekki stætt úti. Það var bara dýrvitlaust veður og það hélst þannig langt fram á nótt,“ segir Vernharð í viðtali á ruv.is.

Þá voru víða truflanir á rafmagni og rafmagnsleysi í nótt og víða hefur frést af tjónum á útihúsum og lausamunum. Feyki er ekki kunnugt um tjón á íbúðarhúsum eða fólki. Skólahald féll almennt niður í Skagafirði í dag en þó var kennt í Árskóla á Sauðárkróki og leikskólinn Ársalir opinn, enda náði veðrið sér aldrei á strik á Sauðárkróki.

Hægt er að senda myndir og fréttaskot frá óveðrinu á netfangið kristin@feykir.is eða í síma 8673164.

Fleiri fréttir