Mark Watsons minnst í Glaumbæ

Í tilefni af afmæli skoska aðalsmannsins Mark Watson, laugardaginn 18. júlí, stendur Byggðasafn Skagfirðinga fyrir dagskrá í Glaumbæ. Watson var mikill Íslandsvinur og er honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938, sem átti sinn þátt í að bærinn er enn varðveittur.

Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundakynsins og er afmælisdagur hans „Dagur íslenska fjárhundsins“. Af því tilefni ætla íslenskir fjárhundar að heimsækja safnið þennan dag. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda.

Venju samkvæmt er boðið upp á gamla leiki á safnsvæðinu kl. 12 og leiðsögn kl. 13. Leiðsögnin verður þó með öðru sniði en venjulega þar sem áhersla verður lögð á mann dagsins, Mark Watson. Klukkan 14:00 líta íslensku hundarnir í heimsókn og ungum gestum verður boðið á bak á hestum frá Syðra–Skörðugili.

Verið hjartanlega velkomin í Glaumbæ!

/Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir