Markaðssetning til umræðu á súpufundi

Í tilkynningu frá Félagi ferðaþjónustunnar í Skagafirði er minnt á súpufund sem félagið stendur fyrir í hádeginu næstkomandi miðvikudag og hefst hann klukkan 12. Á fundinum verður fjallað um markaðssetningu ferðaþjónustufyrirtækja og mikilvægi þess að standa vel að þeim málum.
Camille Thiebaut markaðsfræðingur og Hrafnhildur Viðarsdóttir eigandi fyrirtækisins Eltu mig munu halda erindi á fundinum. Einnig verður sagt frá því sem gert hefur verið í átaki félagsins um vetrarferðaþjónustu í Skagafirði. „Hlökkum til að sjá sem flesta,“ segir í tilkynningu frá stjórn félagsins.