Markaðsskrifstofa vill flug áfram á Sauðárkrók
Á aðalfundi Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi sem haldinn var á Akureyri 13. okt. sl. voru samgönguyfirvöld eindregin hvött til þess að beita sér fyrir því að áætlunarflug til Sauðárkróks leggist ekki af en boðað hefur verið að áætlunarflug til Sauðárkróks leggist af um næstu áramót ef ekki næst að semja við yfirvöld um ríkisstuðnings.
„Ef af verður er ríkisvaldið í raun að kippa á brott einni mikilvægustu stoð samfélagsins í Skagafirði og ganga á bak orða sinna í Sóknaráætlun 2020 um eflingu atvinnulífs með áherslu á m.a. atvinnu- og gjaldeyrissköpun vegna vaxandi ferðaþjónustu. Er þá ótalið hið metnaðarfulla markaðsátak „Ísland – allt árið“ um að stórauka vetrarferðaþjónustu um land allt en vandséð er hvernig niðurlagning áætlunarflugs til Sauðárkróks stuðlar að framgangi fyrrgreindra markmiða", segir í ályktun frá Markaðsskrifstofunni.