Markalaust jafntefli
Lið Kormáks/ Hvatar átti sinn fyrsta heimaleik gegn Skallagrími í gær. Lyktaði leiknum með jafntefli eftir æsispennandi viðureign, að því er fram kemur á skemmtilegri aðdáendasíðu Kormáks/ Hvatar á fésbókinni.
Nokkur góð færi munu þó hafa skapast ef marka má lýsingar á borð við þessar á fésbókarsíðunni: -James tekur boltann á kassann og á gott skot sem markvörðurinn ver glæsilega í stöng, sannkallað dauðafæri. - Ingvi með flott skot sem sleikir stöngina, því miður utanverða.
Á umræddri fésbókarsíðu er Óli markvörður útnefndur maður leiksins. -Hann varði tvisvar frábærlega og hirti allar fyrirgjafir af öryggi. Honum næstir voru Hlynur Rikk sem átti stórgóðan leik og Eysteinn sem stjórnaði vörninni af öryggi. Það voru margir fínir punktar í leiknum í kvöld og það styttist í fyrsta sigur sumarsins, svo mikið er víst, segir á fésbókarsíðu Kormáks/ Hvatar.