„Maskaraklessur eru mitt versta förðunarslys“

Vigdís Sveinsdóttir er 19 ára gömul og býr á Sauðárkróki. Hún stundar nám við Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra og stefnir á að útskrifast af viðskipta- og hagfræðibraut í desember 2015. Feykir spurði Vigdísi út í hennar daglegu förðunarrútínu.

Hver eru þín helstu áhugamál?

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tísku og bara öllu sem við henni kemur. Einnig hef ég gaman af ferðalögum, förðun, að hlusta á tónlist, stunda íþróttir og að vera í góðra vina hópi. 

Vigdís

Hver er þín daglega förðunarrútína?

Hversdagslega förðunarrútínan mín myndi líta einhvern veginn svona út:
1. Primer: Photo Finish Foundation primer frá Smashbox.

2. Púður: Waterproof Powder nr. 30 frá Maybelline.

3. Kinnalitur: Sweet Rose frá H&M.

4. Augabrúnir: Brun Noir nr.2 frá Lancome.

5. Maskari: Hypnose Drama Waterproof frá Lancome.

6. Varalitur: Pink Pop frá Maybelline verður oftast fyrir valinu.

Dagleg rútína

Hver er þín uppáhalds förðunarvara?

Extreme Lip plumperinn frá Victoria‘s Secret.

...

Hvenær byrjaðir þú að farða þig?

Ég byrjaði um 14 ára, rétt fyrir fermingu.

vigdís 3

Hvað er þitt versta „förðunarslys“?

Það var svokallað trend hjá okkur vinkonunum þegar við vorum í grunnskóla að nota alltof mikið af maskara, bara því meira því betra. Augnhárin voru öll í klessu og því segi ég að „maskaraklessur“ séu mitt versta förðunarslys.

Vigdís

En svona almennt, hver eru þá algeng „förðunaslys“ að þínu mati

Ég held að ég verði að segja að augabrúnir séu of algengt förðunarslys. Mér finnst alltaf flottast að sjá þær sem náttúrulegastar í lit og lagi, en það er bara minn smekkur.

Hvað er þitt helsta náttúrulega leyndarmál að betra útliti?

Hugsa vel um húðina sína og nota t.d. gott rakakrem daglega. Ég nota Pure Cloud Cream frá Skyn Iceland og það fæst á netversluninni nola.is. Það virkar ekkert smá vel fyrir mína húð og ég fann strax fyrir jákvæðum breytingum. Að borða hollt og drekka mikið vatn hjálpar líka alltaf til.

Untitled

Lítur þú upp til einhvers einstaklings þegar kemur að förðun?

Ekki beint, en ég fylgist stöku sinnum með förðunarfræðingum á Instagram eða á youtube til að læra meira. Teni Panosian og Carli Bybel eru þar í uppáhaldi.

Teni Panosian Carli Bybel

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ef þú mættir velja hvern sem er í heiminum til að kíkja í snyrtitöskuna hjá, hvern myndir þú velja?

Ég held að það væri í snyrtitöskuna hjá förðunarfræðingnum hennar Kylie Jenner, mér finnst hún alltaf svo flott.

Áttu mynd af förðunaraðstöðunni þinni?

..

Fleiri fréttir