Matarkistan Skagafjörður fær endurbættan vef

Matarkistan Skagafjörður hefur fengið endurbætta vefsíðu en verkefnið hófst fyrir nokkrum árum og gengur út á samvinnu ýmissa aðila í héraðinu að því að efla skagfirska matarmenningu og koma henni á framfæri.

„Þeir veitingastaðir sem eru þátttakendur í verkefninu leitast eftir að elda úr skagfirsku hráefni og er maturinn þá ýmist framleiddur eða unnin í Skagafirði og framreiddur að skagfirskum sið,“ segir um verkefnið á vefnum.

Lógó Matarkistunnar vísar í Drangey sem fyrr á tímum var  kölluð matarkista Skagfirðinga og er því ætlað að vekja athygli á að maturinn á uppruna sinn hér í héraðinu.

Hér er slóðin á nýja vef Matarkistunnar Skagafjörður.

Fleiri fréttir