Matur og menning
Eitt af valnámskeiðum í BA-námi í ferðamálafræði er Matur og menning. Í námskeiðinu er rætt um hlutverk matar og matarmenningar í ferðaþjónustu, m.a. í markaðssetningu áfangastaða og sem hluta af ímynd svæða.
Matur er skoðaður sem upplifun og afþreying og sem þáttur í umfjöllun um hefðir og sögu. Einnig er rætt um mikilvægi matar í nýsköpun og vöruþróun og um staðbundin matvæli í samhengi sjálfbærrar þróunar.
Á mánudaginn fóru staðnemar í námskeiðinu í vettvangsferð, í fylgd kennara síns, Laufeyjar Haraldsdóttur. Ferðinni var heitið á tvo staði innan héraðs, Ákaffi og Syðra-Skörðugil.
Áskaffi er til húsa í gamla Áshúsinu sem er hluti af Byggðasafni Skagfirðinga í Glaumbæ. Þar er m.a. boðið upp á veitingar eins og tíðkuðust á íslenskum heimilum á síðustu öld, þegar húsmæður báru fram „kaffi og með því“. Gestgjafinn, Auður Herdís Sigurðardóttir, tók á móti hópnum með miklum myndarbrag.
Ekki voru móttökurnar síðri á Syðra-Skörðugili. Erindið þangað var að fá sýnikennslu í skyrgerð, hjá húsmóðurinni Ásdísi Sigurjónsdóttur sem leiddi viðstadda í gegnum það ferli. Í lok heimsóknarinnar buðu þau hjónin, Ásdís og Einar, upp á þjóðlegar veitingar í eldhúsinu á Skörðugili, meðal annars heimasúrsaða hrútspunga og sviðalappir, sannkallaða þorraveislu.