Maurice Miller leikmaður áttundu umferðar
Mikil gleði ríkir nú á Króknum með gengi Tindastólsmanna í körfunni en þeir eru sjóðheitir um þessar mundir og hafa unnið fjóra leiki í röð í Iceland Express deild karla. Maurice Miller fór mikinn í áttundu umferð þegar Tindastólsmenn lögðu KR í Síkinu um daginn og splæsti kappinn þar í glæsilega þrennu eins og segir á Karfan.is.
Miller gerði 27 stig, tók 11 fráköst og gaf 14 stoðsendingar í sigurleik Tindastóls gegn KR en þann leik varð að framlengja og lauk honum 99-94 Stólunum í vil en með þeim árangri varð Miller kosinn Gatorade-leikmaður áttundu umferðar.
- Gatorade-leikmaður sjöundu umferðar: Charles Michael Parker
- Gatorade-leikmaður sjöttu umferðar: Nathan Walkup
- Gatorade-leikmaður fimmtu umferðar: Marvin Valdimarsson
- Gatorade-leikmaður fjórðu umferðar: Níels Dungal
- Gatorade-leikmaður þriðju umferðar: Árni Ragnarsson
- Gatorade leikmaður annarar umferðar: Cameron Echols
- Gatorade-leikmaður fyrstu umferðar: Guðjón Lárusson