Með allt á hreinu
Herra Hundfúll fylgdist með umræðunni í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum um dapurlega niðurstöðu íslenskra nemenda í svokallaðri PISA-könnun. Ef hann skildi þessa umræðu rétt þá erum við með góða skóla, frábæra kennara, slappa nemendur og ömurlega foreldra.
Fleiri fréttir
- 
									
						Byggðarráð Skagafjarðar fagnar markmiðum reglugerðar vegna riðu í sauðféÁ fundi byggðarráðs Skagafjarðar sl. miðvikudag voru meðal annars tekin til skoðunar drög atvinnuvegaráðuneytisins að reglugerð um riðuveiki í sauðfé. Fagnaði byggðarráð markmiðum reglugerðarinnar „... um að lögð verði megin áhersla á að útrýma riðuveiki á Íslandi með verndun fjárstofns sem ber verndandi aðgerðir gegn riðusmitefni, ásamt áframhaldandi aðgerðum til að hefta mögnun og dreifingu smitefnisins.“Meira
- 
									
						Sameining Dalabyggðar og Húnaþings vestra yrði framfaraskref fyrir íbúaSamstarfsnefnd um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórna sveitarfélaganna. Í frétt á Húnahorninu segir að þar komi m.a. fram að fjárhagur sameinaðs sveitarfélags yrði sterkur og fjárfestingargeta þess betri en hjá sveitarfélögunum hvoru um sig.Meira
- 
									
						Ný útilistaverk líta dagsins ljós á Hvammstanga„Við erum ákaflega stolt af útilistaverkunum sem hafa litið dagsins ljós síðustu daga. Bæði hafa sterka vísun í svæðið, annars vegar Selurinn við Brúarhvamm og hins vegar Veðurglugginn sem staðsettur er í fjörunni neðan við Selasetrið,“ segir í tilkynningu á vef Húnaþings vestra.Meira
- 
									
						Gul veðurviðvörun á morgunfeykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 30.10.2025 kl. 15.35 oli@feykir.isÞað má segja að við hér á Norðurlandi vestra höfum sloppið ansi vel við þetta vetrarskot sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu fengu að upplifa framan af vikunni. Það hefur engu að síður snjóað í léttu og þægilegu magni hjá okkur og þegar sólin fór að skína þá var póstkortastemning um víðan völl. Ekki er þó útlit fyrir að vetrarfegurðin endist eitthvað því á morgun, föstudag, hlýnar og Veðurstofan búin að skella framan í okkur gulri veðurviðvörun.Meira
- 
									
						Lyfja veitir aðgang að sálfræðiþjónustu í Lyfju appinufeykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 30.10.2025 kl. 15.05 oli@feykir.isLyfja býður nú upp á aðstoð sálfræðings í gegnum Lyfju appið. Þjónustan er veitt af sálfræðingum Mín líðan sem hafa frá árinu 2018 sérhæft sig í sálfræðiþjónustu á netinu og var fyrsta íslenska fjarheilbrigðisþjónustan sem fékk leyfi til reksturs frá Embætti landlæknis.Meira
 
						 
								 
			 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
