Meðalþyngd dilks 16,12 kg

Nú þegar þriðja vika af sláturtíð er liðin er búið að slátra yfir 33 þúsund fjár hjá Kjötafurðastöð KS. Meðalþyngd dilks er 16,12 kg. Meðaleinkunn fyrir gerð er 8,55 og 6,64 fyrir fitu. Í fyrra á sama tíma var meðalþyngdin 16,25 kg en meðaleinkunn fyrir gerð sú sama og í ár og 6,50 fyrir fitu.

Sláturfjárloforð eru komin yfir 105 þúsund og enn er pláss á síðustu tveim vikunum. Slátursalan er í Skagfirðingabúð eins og undanfarin ár og hefst á morgun, 26. september, og stendur yfir í 3 vikur. Frá þessu segir á heimasíðu Kaupfélags Skagfirðinga, ks.is.

 

Fleiri fréttir