Meistaradeild Norðurlands 2014

Meistaradeild Norðurlands í hestaíþróttum 2014, öðru nafni KS-deildin, hefst 29. janúar nk. og fer þá fram úrtaka um þau sæti sem laus eru í deildinni. Mótadagarnir verða fimm í heildina og mun keppnin fara að venju fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum á miðvikudagskvöldum og hefst klukkan 20:00 hvert kvöld.  

Keppnisdagar eru þessir:

  • 29. janúar úrtaka um þau sæti sem laus eru í deildinni.
  • 26. febrúar fjórgangur
  • 12. mars fimmgangur
  • 26. mars Tölt
  • 9. apríl slaktaumatölt og skeið

Á Svadastadir.is kemur fram að fyrirhugað sé að brydda upp á nýjungum þetta árið en fram til þessa hefur keppnin að mestu verið einstaklingskeppni en nú mun liðakeppni fara fram samhliða einstaklingskeppninni. Gert er ráð fyrir að sex lið munu keppa sín á milli og munu stigahæstu knapar KS-deildarinnar 2013 verða fyrirliðar.

Rætt var um eftirtalda aðila sem fyrirliða í liðakeppninni:

  • Ísólfur Líndal, Lækjamóti
  • Mette Mannseth, Þúfum
  • Bjarni Jónasson, Narfastöðum
  • Þórarinn Eymundsson, Saurbæ
  • Elvar Einarsson, Syðra-Skörðugili
  • Viðar Bragason, Björgum.

 

Fleiri fréttir