Meistaradeild Norðurlands frestar úrtöku

Spáð er vonsku veðri á Norðurlandi á morgun og annað kvöld og því hefur stjórn Meistaradeildar Norðurlands ákveðið að fresta úrtöku sem átti að vera miðvikud 25. jan til miðvikudagsins 1. febrúar. Veðurstofan hefur gefið út stormviðvörun meira en 20 m/s á Vestfjörðum síðdegis á morgun og um V-vert landið annað kvöld.
Annars er spáin þannig að í dag verður austan 10-18 og él mun hægari austlæg átt og úrkomulítið undir kvöld. Snýst í norðaustanátt í nótt með snjókomu. Norðan 18-23 m/s á Ströndum síðdegis á morgun, annars 8-15 en 18-23 víðast hvar annað kvöld. Frost 0 til 5 stig.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ fimmtudag:
 Norðvestan 10-18 m/s með snjókomu eða éljum en úrkmoulítið syðst. Lægir og dregur úr úrkomu þegar líður á daginn, fyrst S- og V-til. Talsvert frost. Suðvestan 5-10 og él vestantil um kvöldið, en hlánar við SV-ströndina.

Á föstudag:
 Suðaustanátt með slyddu og síðar rigningu, en úrkomulítið NA-til. V-lægari V-til um kvöldið. Hlýnar um allt land.

Á laugardag:
 Suðlæg átt og væta, einkum S- og V-til en þurrt að mestu NA-til fram eftir degi. Hiti 0 til 8 stig.

Á sunnudag:
 SV-átt og éljagangur S- og V-til en bjartviðri N- og A-lands. Kólnar um allt land.



Fleiri fréttir