Metan gas ekki í boði á Norðurlandi vestra

Að sögn Rúnars Jónssonar hjá bifreiðaverkstæði KS á Sauðárkróki eru aðrir aflgjafar á birfreiðar en eldsneyti ekki í boði á Norðurlandi vestra. Ekki nema ökumenn fari að kaupa sér rafmagnsbíla. Sú leið sem fjármálaráðherra boðar að skipta yfir í metan er því ekki í boði á okkar svæði.

„Þetta er ekki hægt hér og þyrftu ökumenn að keyra til Reykjavíkur til að fylla á bíla sína eftir að hafa lagt upp í kostnað við að láta breyta bílunum,“ svarar Rúnar spurningum Feykis. Jafnframt segir Rúnar eð ekki sé tækni til staðar til að breyta venjulegum bílum yfir í rafmagnsbíla. Ökumenn á Norðurlandi vestra verða því enn um sinn að sætta sig við að greiða svimandi háar upphæðir fyrir dropann.

Í umræðunni síðustu daga hefur komið fram að einhverjir díselbílaeigendur séu farnir að nota Steinolíu til móts við olíu á bíla sína en sú leið er bæði ólögleg og einnig segir Rúnar að með þessari aðferð sé hætta á að olíuverk bílsins endist mun skemur en ella. „Þá má gera ráð fyrir að bíllinn eyði mun meira þegar búið er að blanda eldsneytið með steinolíu og þá er þetta orðin spurning með sparnaðinn auk þess sem hér á þessu svæði er ekki boðið upp á steinolíu nema í litlum einingum og bras að ætla að fara að hella henni yfir á bílinn,“ segir Rúnar.

Þegar blaðamaður keyrði fram hjá bensínstöð í morgun kostaði líterinn af díselolíu 230,5 krónur og var bensínverðið litlu lægra.

Fleiri fréttir