Metúrkoma fyrstu þrjár vikurnar í júlí
Einhverjum hefur eflaust þótt nóg um rigninguna það sem af er júlímánuði, þó menn fari varlega í að hallmæla henni eftir þurrkasumur síðustu sumur og ótíð vetrarins, en hefur rigningin orðið til þess að sprettan er góð. Blaðamanni lék forvitni á að vita hversu mikil þessi úrkoma reyndist í samanburði við síðustu ár og hafði því samband við veðurstofuna.
Að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings er úrkoman það sem af er júlí (1.-22. Júlí) 56,4 mm á Bergsstöðum í Skagafirði. Trausti segir jafnframt að hún hafi aldrei verið meiri á þessu tímabili (fyrstu þrjár vikurnar í júlí, þó litlu hafi munað, t.d. árið 2001. Úrkoman er líka mun meiri heldur en verið hefur undanfarin fjögur ár.
Hér fyrir neðan má sjá úrkomu í mm á tímabilinu 1.-22.júlí978-2013, eða í 35 ár:
Úrkoma á Bergstöðum (mm) 1. til 22. júlí 1978 til 2013
STOD AR MAN 4
361 1978 7 16.3
361 1979 7 31.2
361 1980 7 13.2
361 1981 7 23.2
361 1982 7 24.3
361 1983 7 46.9
361 1984 7 10.4
361 1985 7 47.0
361 1986 7 16.2
361 1987 7 40.2
361 1988 7 14.3
361 1989 7 18.9
361 1990 7 11.1
361 1991 7 15.3
361 1992 7 7.6
361 1993 7 18.6
361 1994 7 34.5
361 1995 7 15.1
361 1996 7 12.6
361 1997 7 42.1
361 1998 7 38.5
361 1999 7 25.4
361 2000 7 23.5
361 2001 7 53.7
361 2002 7 25.0
361 2003 7 38.7
361 2004 7 8.4
361 2005 7 30.0
361 2006 7 38.7
361 2007 7 3.9
361 2008 7 42.8
361 2009 7 2.8
361 2010 7 17.8
361 2011 7 0.3
361 2012 7 9.8
361 2013 59,4