M.fl. kvenna og 3. flokkur karla spila kl.18 og 20 í kvöld
M.fl. kvenna tekur á móti Fjölni á Sauðárkróksvell klukkan 20.00 í kvöld, föstudaginn 8. júlí. Fjölnir er með hörkulið og unnu Haukastelpur í sínum síðasta leik 2-0. Þær eru á svipuðum stað í riðlinum og það má búast við hörkuleik hjá Bjarka og stelpunum í kvöld.
Fyrir þann leik mun 3. flokkur karla taka á móti Akureyrar Þór í Valitor bikarnum eða klukkan 18:00. Þriðji flokkurinn hefur verið á hörku "runni" undanfarið og eftir að hafa gert frábæra ferð á Skagann um daginn þá unnu þeir líka Fram í síðasta leik 2-0. Strákarnir spila sína heimaleiki einnig á Siglufirði og því er kærkomið tækifæri til að sjá þetta hörkulið spila á Sauðárkróksvelli.
Allir eru hvattir til að gera þennan föstudag að alvöru fótboltadegi og mæta snemma á Sauðárkróksvöll og hvetja okkar lið til sigurs.
/Tindastóll.is