M.fl.kvenna með fjáröflun

M.fl. kvenna stendur í stórræðum um þessar mundir en auk þess að vera byrjaðar að æfa og undirbúa komandi sumar þá standa þær í fjáröflun ýmiskonar en stelpurnar stefna á að fara í æfingaferð erlendis í vor.

 

Á Tindastóll.is segir að vel hafi gengið þeim að safna upp í ferðina en um helgina stóðu þær fyrir markaði í vallarhúsinu þar sem ýmiss varningur var til sölu. Einnig héldu þær kökubasar

Þær hafa einnig verið að selja lakkrís, og stóran poka af nammi, eldhúsrúllur og ruslapoka sem alltaf koma að góðum notum og salernispappír er á leiðinni. Þeir sem vilja styrkja stúlkurnar með kaupum á þessum eðalvörum geta haft samband við Sunnu Björk í síma  848 7497.

Fleiri fréttir