MÍ 11-14 ára í frjálsíþróttum - gull, silfur og 4 brons til UMSS
Á heimasíðu Tindastóls kemur fram að Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, fyrir 11-14 ára, fór fram í Vík í Mýrdal helgina 25.-26. júní. Keppendur voru um 200, þar af 9 Skagfirðingar, sem allir stóðu sig með ágætum, og unnu m.a. til sex verðlauna.
Sæþór Hinriksson (11) sigraði í hástökki og varð í 3. sæti í langstökki.
Kolbrún Birna J. Þrastardóttir (12) varð í 2. sæti í spjótkasti.
Fríða Ísabel Friðriksdóttir (13) varð í 3. sæti í langstökki og 800m hlaupi.
Vésteinn Karl Vésteinsson (12) varð í 3. sæti í spjótkasti.