Mið-Ísland í sal FNV í kvöld
„Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika!“, segir slagorð Mið-Íslands en uppistandshópurinn hefur notið mikilla vinsælda undanfarið og hafa m.a. verið með uppistandskvöld í Þjóðleikhúskjallaranum og Þjóðleikhúsinu. Nú er röðin komin að Sauðárkróki en hópurinn verður með uppistand í kvöld, miðvikudaginn 1. febrúar, í sal Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra.
Þeir sem mæta í uppistandið er Ari Eldjárn, Dóri DNA, Bergur Ebbi og Jóhann Alfreð. Húsið opnar klukkan 20:00, sýningin hefst svo klukkan 20:30. Miðinn kostar 1000 kr. fyrir meðlimi NFNV en 2000 kr. fyrir aðra. Vert er að taka fram að öll meðferð áfengis er bönnuð.
Hér má sjá nokkra valda brandara frá þeim uppistandskvöldum sem Mið-Ísland var með fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúskjallaranum.