Miðar á Rjúkandi ráð rjúka út
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
30.04.2014
kl. 15.19
Uppselt er á þriðju sýningu Leikfélags Sauðárkróks á Rjúkandi ráð sem verður í kvöld. Næsta sýning er miðnætursýning kl. 23 á föstudagskvöldið kemur, 2. maí. Alls verða sýningarnar níu, sú síðasta sunnudaginn 11. maí.
Þess má geta að uppselt er laugardaginn 10. maí en Félag eldri borgara býður félagsmönnum sínum á þá sýningu, eins og auglýst er í Sjónhorninu í dag. Blaðamaður Feykis skellti sér á frumsýningu og tók nokkrar myndir af stemningunni rétt fyrir og rétt eftir sýningu.