Mikilvægt að varðveita húsið innan héraðs

Á fundi byggðarráðs Svf. Skagafjarðar var lagt fram bréf frá Minjastofnun Íslands varðandi gamla íbúðarhúsið að Hraunum í Fljótum sem er byggt 1873, líkrar gerðar og Áshúsið á Byggðasafni Skagfirðinga í Glaumbæ. Núverandi eigendur hússins hafa ekki hug á að viðhalda húsinu og vilja það burt af staðnum.

Í bréfinu kemur fram að það sé mat stofnunarinnar að mikilvægt sé að varðveita húsið innan héraðsins og björgun þess forgangsverkefni á sviði húsverndar í Skagafirði.

Byggðarráð samþykkti að senda erindið til umsagnar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar.

Fleiri fréttir