Minjahúsinu lokað fyrir veturinn
Sumarsýningum í Minjahúsinu á Sauðárkróki hefur nú verið lokað fyrir veturinn. Sýningarnar og upplýsingamiðstöð í Minjahúsinu var opin alla daga frá kl. 13 til 21 í sumar.
Gestir sumarsins voru 2282 talsins, þar af voru 1338 erlendir. 1210 voru að leita upplýsinga um Sauðárkrók og nærsveitir. Af þeim voru fleiri erlendir en íslenskir.
Sýningarnar verða opnar eftir samkomulagi í vetur. Þær verða aðeins breyttar frá því í sumar þar sem Sturlungaseríu Jóhannesar Geirs hefur verið skilað til Árskóla, sem á þau glæsilegu málverk. Í staðinn hefur Listasafn Skagfirðinga lánað nokkur fáséð verk eftir Jóhannes Geir á sýninguna.