Minningartónleikar Elísabetar Sóleyjar

Minningartónleikar Elísabetar Sóleyjar Stefánsdóttur, sem lést eftir hetjulega baráttu við krabbamein þann 15. febrúar sl., verða haldnir í Tjarnabíói í Reykjavík þann 26. mars og hefjast kl. 20. „Ég, ásamt fleirum, dáðist að baráttuvilja hennar og æðruleysi í þessum miklu veikindum sem hún gekk í gegnum og langaði einfaldlega að leggja henni lið á einhvern hátt,“ sagði Hulda Jónasardóttir, skipuleggjandi og vinkona Elísabetar, í samtali við Feyki.

Nokkrir vinir og vandamenn Elísabetar höfðu ráðgert að halda styrktartónleika fyrir hana og dæturnar. Eftir andlát hennar var ákveðið að halda þeirri dagsetningu óbreyttri og halda þess í stað minningartónleika. Öll innkoma mun renna til dætra Elísabetar; þeirra Hörpu Katrínar, Sólveigar Birnu og Rebekku.

„Hún tók afskaplega vel í þá hugmynd að halda tónleika og hlakkaði mikið til og tók fullan þátt með mér í undirbúningnum fyrst til að byrja með og hafði m.a. sjálf komið með hugmyndir af því hvaða listamenn hana langaði að sjá á tónleikunum og held ég að það hafi tekist að uppfylla allar hennar óskir... því allir listamennirnir tóku alveg svakalega vel í þetta,“ segir Hulda en sem fyrr segir stendur hún að tónleikunum ásamt Valgerði Erlingsdóttur, sem verður kynnir og Adam Smára Hermannssyni sem sér um öll tæknimál.

Fram koma Vestanáttin, Víó, Jógvan Hansen og Vignir Snær, Regína Ósk, Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars, Pétur Ben, Sólveig Fjólmunds, Kristján Gíslason, Ægir Ásbjörnsson, Hreindís Ylva og Sandra Gunnars.

„Við ætlum að reyna að skapa kósý stemmingu og flytja fallega tónlist. Lög eins og „Heyr mína bæn“, „Umvafin englum“, „Halelujah“, og „Björt nótt“ eftir Geirmund eru lög sem munu m.a.  heyrast þetta kvöld í bland við eitthvað meira rokk og ról,“ sagði Hulda og bætti við að dætur Elísabetar ætli að opna tónleikana með því að taka lagið með söngkonunni Regínu Ósk en hún hefur kennt þeim söng.

Miðasala er hafin á www.midi.is og kostar miðinn 3500 kr. Þess má geta að ekki verður hægt að kaupa miða við innganginn.

Fleiri fréttir