Minnismerki til heiðurs Hannesi Péturssyni

Samkvæmt fundargerð Skipulags- og byggingarnefndar Svf. Skagafjarðar frá 6. janúar sl. hefur Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd sveitarfélagsins leitað eftir samþykki fyrir staðsetningu minnismerkis á Nafabrún, austan kirkjugarðs. Áformað er að reisa þar minnismerki til að heiðra skagfirska rithöfundinn Hannes Pétursson.
Í fundargerð segir að skissa, sem gerir grein fyrir fyrirhuguðu útliti og stærð minnismerkisins, hafa fylgt með erindi Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar. Samþykkt var að skipulags- og byggingarfulltrúi skoði staðsetningu minnismerkis í samráði við umsækjendur.