Mörg börn komu að sjá Brúðubíllinn
Fallegt veður var á Flæðunum og Króksmót enn í fullu gangi þegar Brúðubíllinn sívinsæli kom á Sauðárkrók á sunnudag.
Börnin skemmtu sér konunglega yfir Brúðubílnum en Helga Steffensen hefur stjórnað Brúðubílnum í rúm 30 ár og því ekki ólíklegt að einhverjir foreldrar í áhorfendahópnum hafi horft á Brúðubílinn á árum áður.