Mörkum safnað í markaskrá
Hafin er söfnun á mörkum og frostmerkjum í markaskrá Skagafjarðasýslu 2012 og lýkur henni 20.desember næstkomandi. Safnað er í hverju fjallskilaumdæmi og eru markaeigendur hvattir til að kynna sér málið.
Markaskráin er gefin út á átta ára fresti en hún var síðast gefin út árið 2004. Hvert mark sem skráð er mun kosta kr. 2500. Nánari upplýsingar gefur Lilja Ólafsdóttir markavörður í símum 4536531 og 8468181.