Mótmælir breytingu á lögum um náttúruvernd

Miðfjarðarvatn í Húnaþingi vestra. Mynd: Visithunathing.is
Miðfjarðarvatn í Húnaþingi vestra. Mynd: Visithunathing.is

Byggðarráð Húnaþings vestra lagði fram, á fundi sínum þann 18. mars, bókun varðandi fyrirhugaðar breytingar á lögum um náttúruvernd sem áformað er að leggja fram á vorþingi 2019. Í bókun byggðarráðs er fyrirhuguðum breytingum mótmælt harðlega.

Frumvarpið leggur  m.a. til að almannaréttur einstaklinga sem ferðast um óræktuð eignarlönd í byggð sér styrktur. Við það gerir byggðarráð alvarlegar athugasemdir og segir í bókun þess að það hljóti alltaf að vera réttur landeigenda að takmarka aðgengi að afgirtu landi í byggð. Land sé almennt ekki girt af án ástæðu. Þar geti bæði legið að baki landverndarsjónarmið, dýravelferðarsjónarmið og nýtingarsjónarmið. Sem dæmi er tekið að það þurfi að vera mögulegt fyrir bændur að takmarka aðgengi að hólfum þar sem búfénaði er beitt og geti það bæði varðað velferð búfjár og almennings. Þá getur viðkomandi land verið í uppgræðslu- eða skógræktarferli og gæti því óheftur aðgangur almennings í miklum mæli stórraskað viðkomandi starfi.

Í þriðju grein frumvarpsins er lagt er til að heimilt verði að takmarka fjölda ferðamanna um tiltekin svæði í kjölfarið á rökstuddu mati sem byggi á þolmarkagreiningu svæðis. Matið þarf að vinna af Umhverfisstofnun og auglýsa í Stjórnartíðindum áður en viðkomandi takmörkun verður staðfest. Í bókun byggðarráðs segir: „Ekki verður séð að mikil náttúruvernd sé fólgin í þessu ákvæði, enda viðbúið að verkferli sem þetta taki töluverðan tíma og væri þá jafnvel búið að vinna óbætandi tjón á viðkomandi svæði áður en takmörkun tæki gildi.“

Að lokum segir í bókun ráðsins: „Frumvarpið í heild virðist ekki til þess fallið að auka náttúruvernd, enda fyrirséð að fyrirhugaðir verkferlar taki langan tíma, ásamt því að eingöngu er heimilt að taka gjald af ferðaþjónustu í atvinnurekstri en ekki af ferðamönnum sem ferðast um á bílaleigubílum. Þá er freklega brotið á rétti landeigenda hvað varðar umráð yfir eigin landi. Engar tölur liggja fyrir í greinargerð um að skipulagðar hópferðir eyðileggi land frekar en ferðamenn á bílaleigubílum, og má í framhaldinu velta fyrir sér hvort hér sé um brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar að ræða.“

 

 

Fleiri fréttir