Myndaáskorun um minjar í íslenskri náttúru

Byggðasafn Skagfirðinga hefur tekið þátt í myndaáskorun sem fór fram á Facebook síðustu daga en fimmta og jafnframt síðasta myndin var birt í dag. Það var Fornleifastofnun Íslands sem skoraði á Byggðasafnið að birta myndir af minjum í íslenskri náttúru á fimm dögum.
„Af nógu er að taka og við ætlum að byrja í Grafarósi (sunnan Hofsóss) en þar var verslunarstaður á árunum 1835-1915. Minjarnar er í hættu þar sem Grafará er að brjóta af höfðanum öðrum megin og sjórinn hinu megin. Það er kjörið að fá sér göngutúr út á höfðann og skoða minjarnar og njóta fallegrar náttúru í leiðinni,“ segir á Facebook-síðu Byggðasafnsins.
„Það rignir stundum á starfsmenn safnsins (og gránar jafnvel í fjöll) við vinnu og þá er gott að geta leitað skjóls í smalabyrginu á Akradal. Þaðan er víðsýnt en við horfum fram Heimdal í þokumóðu og sjáum Tungufjallsá sem rennur eftir dalbotninum og síðustu metrana í gili að ármótum við Djúpadalsá,“ segir á örðum degi áskorunarinnar.
„Það er glaðasólskin í Skagafirði í dag og við auðvitað í sólskinsskapi. Í svona góðu veðri leitar hugurinn til sumarsins og við stöldrum við á dásamlegum degi í Málmey en þar var búið allt frá landnámi fram til ársins 1951. Á myndinni er hlöðuþak með bárujárni í forgrunni en í baksýn er Höfðaströnd frá vinstri, Þórðarhöfði, Málmeyjarsund og lengst til hægri Kringla, syðsti hluti eyjarinnar,“ segir á þriðja degi.
„Við höldum áfram að ylja okkur við fallegar sumarmyndir, að þessu sinni frá bænum Ytri-Björgum á vestanverðum Skaganum sem skilur að Húnaflóa og Skagafjörð. Í forgrunni er gamall áburðardreifari en í baksýn björgin sem bærinn dregur nafn sitt af og Bjargstapi, stakur klettur með gati í gegn, þar sem veiðibjallan á sér öruggt varpland,“ segir á fjórða degi.
„Við fljúgum yfir Gjávík í Sléttuhlíð og virðum fyrir okkur beitarhúsatóftir á bakkanum. Húsin til vinstri á myndinni voru kölluð Fjárborg og byggð laust fyrir 1940. Myndin sýnir glögglega hvernig sjórinn brýtur land og er þegar byrjaður að brjóta af tóftunum. Byggðasafnið hefur á undanförnum árum skráð strandlínu Skagafjarðar og stefnt er að því að ljúka verkefninu í ár,“ segir á fimm og jafnframt síðasta degi áskorunarinnar.