Myndband úr Staðarréttum

Réttað var í Staðarrétt laugardaginn 14. september sl. Vel gekk að smala afréttinn en færið var nokkuð erfitt á köflum þar sem snjór var í fjöllum og blautt. Hross voru þó í færra lagi sem komu niður ganginn við réttina en um hundrað hross komu niður Reykjarskarðið fyrir ofan Skarðsá og voru rekin út Sæmundarhlíðina til réttar. Hér fyrir neðan má sjá hvernig stemningin var í réttinni.

http://www.youtube.com/watch?v=Y14y8OYrR0U

Fleiri fréttir