Myndir af Dægurlagakeppninni

Það var mikil stemning í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki s.l. föstudagskvöld þegar keppt var um hvert væri besta dægurlag Sæluvikunnar 2011. Fjöldi fólks mætti og gaf sínu uppáhaldslagi atkvæði sitt þó vægi atkvæða úr sal segði ekki mikið því vægi dómnefndar sem skipuð var þekktu tónlistarfólki var 80%. Keppnin var í alla staði hin besta skemmtun og mikið fagnaðarefni að hún skuli hafa verið sett á laggirnar aftur og eiga aðstandendur hennar mikið lof skilið.

Þannig fór að lagið Lítið augnablik, samið og flutt af Króksaranum Kristjáni Gíslasyni stóð uppi sem besta lagið, í öðru sæti lenti lag Valgeirs Skagfjörðs, Ég elska þegar sólin skín um Skagafjörð, sem Sigríður Eyrún Friðriksdóttir flutti og Sunna, lag Geirmundar Valtýssonar með texta Árna Gunnarssonar endaði í því þriðja en það voru þau Davíð Smári Harðarson og Stefanía Svavarsdóttir sem sáu um flutning þess. Lögin er hægt að heyra HÉR.

.

Fleiri fréttir