Myndir frá laugardegi í lummum
Eins og komið hefur fram eru Lummudagar í Skagafirði dagana 23. - 26. júní. Það hefur ekki væst um Skagfirðinga og góða gesti í dag og í kvöld heldur fjörið áfram en á íþróttavellinum verður kvöldvaka með Einari töframanni og Matta Papa og klukkan 21:30 verður útidansleikur við Kaffi Krók. Stórdansleikur verður síðan á Mælifelli en þar munu Paparnir hrista meira fjöri í mannskapinn.
Hér má síðan sjá nokkrar myndir sem ljósmyndari Feykis tók í dag.