N4 heimsótti Perluna á Hvammstanga

Sigfríður Eggertsdóttir eigandi þvottahússins Perlunnar. Skjámynd af N4.
Sigfríður Eggertsdóttir eigandi þvottahússins Perlunnar. Skjámynd af N4.

Þvottahúsið Perlan á Hvammstanga hefur verið starfrækt um nokkurt skeið en síðstu ár hefur starfsemin tekið talsverðum breytingum. Það sem byrjaði sem aukavinna hjá hjónunum Sigfríði Eggertsdóttur og Guðjóns Valgeirs Guðjínssonar er í dag öflugt fyrirtæki með hátt í tuttugu manns í vinnu þegar best lætur. Nýlega flutti fyrirtækið í nýtt og stærra húsnæði til að anna aukinni eftirspurn en óhætt má segja að aukning ferðamennskunnar hafi áhrif á vöxt fyrirtækisins. Sjónvarpsstöðin N4 heimsótti Perluna og forvitnaðist um starfsemina. 

 

Fleiri fréttir