Næturkossar Gillons

Gísli Þór Ólafsson, eða Gillon eins og hann kallar sig, gefur út smáskífuna Næturkossa. Hún er önnur smáskífa væntanlegrar plötu sem mun bera nafnið Næturgárun og er væntanleg í febrúar á næsta ári.

Um er að ræða sólóverkefni Gísla Þórs en lagið Næturkossar er rúmlega tíu ára gamalt og samið með bróður hans, Óla Þór, en textinn er eftir flytjanda.

Lagið var tekið upp af Sigfúsi Arnari Benediktssyni í Stúdíó Benmen og Sæþór Már Hinriksson syngur bakraddir.

Hér má hlusta á Næturkossa.

Fleiri fréttir