Námsferð um norðurslóðir

Hópur ungmenna komu við í Skagafirði þann 26. júlí síðastliðinn í námsferð um norðurslóðir sem kallast „Students on Ice“. Um er að ræða 65 ungmenni frá ýmsum löndum á aldrinum 14-18 ára sem flugu frá Toronto í Kanada til Íslands og sigla svo áfram til Grænlands, Labrador, sem er á austurstönd Kanada og Nunavik, nyrsta hluta Kanada.

Teymi 40 sérfræðinga munu ferðast með ungmennunum til að miðla þeim ýmsum fróðleik, þar á meðal eru vísindamenn, sagnfræðingar, listamenn og fleiri. Í ferðinni heimsækja þau samfélög sem á svæðunum búa og áhersla verður lögð á að kynnast því fjölbreytta dýralífi sem norðlægar slóðir hafa upp á að bjóða, skoða fornminjastaði og náttúru.

Tilgangurinn er að fræða komandi kynslóð um þennan heimshluta og að hvetja ungmennin til að vera meðvituð um þann vanda sem hann stendur frammi fyrir með bráðnun jökulbreiðanna á Grænlandi og að ræða mögulegar lausnir á þeim vanda.

Á Íslandi slóst Kristín Kolka, 16 ára stúlka frá Hólum, með í för. Hún hitti hópinn í Reykjavík og fór með þeim að heimsækja ýmsa staði. Þar á meðal Bláa lónið, Víkingasafnið í Keflavík, Selasetrið á Hvammstanga og skoðuðu þau Grábrókargíg í Borgarfirði. Einnig heimsóttu forsetann á Bessastaði og þóttu þeim mikið til hans koma.

Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur var einn af þeim sérfræðingum sem fylgdi hópnum um Ísland þar sem hann jós úr viskubrunni sínum og vakti mikla hrifningu ungmennana. Hópurinn hóf  siglingu sína um norðurhöf frá Siglufirði miðvikudaginn 27. júlí.

Kristín hefur í hyggju að rita ferðasögu sína og að birta hana í Feyki eftir að ævintýraferðinni lýkur þann 7. ágúst. Þeir sem vilja fylgjast með ferðalagi ungmennana geta lesið bloggfærslur þeirra á vefslóðinni: http://studentsonice.com/arctic2011/daily.html

Fleiri fréttir