Námskeið í kljásteinavefnaði
Fornverkaskólinn stendur fyrir námskeiði í kljásteinavefnaði í Auðunarstofu, helgina 18.-20. október 2013. Á námskeiðinu verður farið í gegnum rakningu og uppsetningu á vef í kljásteinavefstað og kennd helstu handbrögðin við að vinna voð á þennan forna hátt.
Í upphafi námskeiðsins verður farið yfir helstu tæki og tól sem tilheyra kljásteinavefstaðnum og síðan farið í gegnum uppsetningarferlið lið fyrir lið með sýnikennslu og þátttöku nemenda. Námskeiðið er 18 klukkustundir og lágmarksfjöldi þátttakenda er sex.
Forfeður okkar notuðu s.k. kljásteinavefstað til að vefa og hér á landi var hann notaður fram á 19. öld, eða í tæp 1000 ár. Í honum var ofinn röggvarfeldur, vaðmál, einskefta, salún, íslenskt glit, krossvefnaður og fleira. Kljásteinavefstaðurinn er í raun afar einfaldur í smíð og handhægur hvar sem er og auðveldur í samsetningu, þó þungur sé.