Námskeið í kljásteinavefstaðsvefnaði

Fornverkaskólinn og Byggðasafn Skagfirðinga stendur fyrir námskeiði í Kljásteinavefstaðsvefnaði á Hólum í Hjaltadal dagana 2.-4. maí nk. Á námskeiðinu verður farið í gegnum rakningu og uppsetningu á vef í kljásteinavefstað og kennd helstu handbrögðin við að vinna voð á þennan forna hátt.

Í upphafi námskeiðsins verður farið yfir helstu tæki og tól sem tilheyra kljásteinavefstaðnum og síðan farið í gegnum uppsetningarferlið lið fyrir lið með sýnikennslu og þátttöku nemenda. Inn á milli verða flutt stutt erindi um sögu vefstaðarins og vefnaðarins.

Kennarar eru Guðrún Bjarnadóttir og Ragnheiður Þórsdóttir. Upplýsingar gefur Bryndís Zoëga, bryndisz@skagafjordur.is eða í síma 453 5097. Nánar um það hér.

Fleiri fréttir