Námskeið með Iben Andersen

Danska tamningakonan Iben Andersen verður með námskeið á Gauksmýri í næstu viku, nánar tiltekið dagana 9. - 13. október. Iben hefur vakið athygli með nýstárlegum aðferðum við frumtamningar og við að leysa vandamál með erfið og spennt hross.

Sýnikennsla verður síðan haldin sunnudaginn 13. október kl. 16.00 á Gauksmýri og er reiknað með að hún taki um þrjá tíma.

Örfá pláss laus eru laus á námskeiðinu og fást nánari upplýsingar hjá Tryggva Björnssyni í síma 898-1057.

Heimasíða Iben Andersen er ibenhestar.dk.

Fleiri fréttir