Námskeið um kolefni og kolefnisflæði sjávar

Á vef Hólaskóla er sagt frá því að dagana 29. júlí til 7. ágúst sl. var haldið námskeið um kolefni og kolefnisflæði sjávar, þar sem áta (dýrasvif) var í brennidepli. Námskeiðið sátu 17 erlendir doktorsnemar í sjávar- og vatnalíffræði og nutu þau leiðsagnar 8 sérfræðinga sem vinna allir að rannsóknum á líf- og vistfræði dýrasvifs eða líkanagerð um ferla kolefnisflæðis vistkerfa sjávar.

Nemendur sátu fyrirlestra heima á Hólum en jafnframt var farið í sýnatökuleiðangra út á Skagafjörð og efniviði safnað, fyrir stutt rannsóknarverkefni sem unnin voru í aðstöðu háskólans í Verinu.

Mynd: Hólaskóli

Sýnatöku var valinn staður í Skagafirði nærri Sauðárkróki þar sem dýpi var 80 metrar og aðstoðaði Steindór Árnason, skipstjóri á Hafey SK-10, rannsóknaskipi námskeiðsins, við staðarval.

Mynd: Hólaskóli

Námskeiðið hafði alþjóðlegt yfirbragð þar sem nemendur frá 11 þjóðlöndum sóttu námskeiðið og nutu leiðsagnar sérfræðinga frá 7 þjóðlöndum. Alþjóðlegt yfirbragð námskeiðsins skapaði frjóar og fjörugar umræður um rannsóknir, mannlíf og menningu. Frumkvæði að skipulagningu námskeiðsins áttu Sigrún Huld Jónasdóttir og Jörg Dutz sem starfa bæði hjá DTU Aqua í Danmörku og var þetta í annað sinn sem námskeið af þessu tagi er haldið á Íslandi, í samstarfi við Erlu Björk Örnólfsdóttur. Vonir eru bundnar við að námskeiðið stuðli að tengslamyndun sérfræðinga framtíðar við íslenskt rannsóknarsamfélag, auki þekkingu okkar á vistkerfi sjávar við Íslandsstrendur og skapi jafnframt aukin námstækifæri fyrir íslenska doktorsnema í sjávarlíffræði.

Mynd: Hólaskóli

Námskeiðið var styrkt af EUROCEANS, Kaupfélagi Skagfirðinga, Technical University of Denmark, EURO-BASIN og Háskólanum á Hólum.

Fleiri fréttir